Heilinn…

Ég var að hlusta á þetta myndskeið um uppbyggingu heilans. Þið gætuð haft gaman að því líka. Eitt af því sem er vert að skoða þegar við spáum í nám fullorðinna er einmitt margt af því sem heilarannsóknir eru að leiða í ljós. Í því samhengi þykir mér athyglivert bæði hversu oft heilrannsóknirnar leiða í ljós atriði sem hafa verið þekkt í kennslufræðinni jafnvel í hundruðir ára, sem upplýsingar um virkni heilans sem koma á óvart. Það er alveg þess virði að kíkja af og til á TED og slá inn leitarorðinu „brian“ því þau eru nokkuð mörg myndskeiðin sem fjalla um þetta, OG þemað er miðlægt á þessu námskeiði.

One thought on “Heilinn…”

  1. TED.com er afar góður námsvefur. Þetta myndskeið um heilann er mögulega gott innlegg í pælingar um hvað virkar í kennslu eða hvað ekki virkar á nemendur. Það var þó ekki síst áhugavert að sjá hve lítið er vitað um heilastarfsemina (mörg grá svæði ólituð enn sem komið er). Svona er það nú.

Skildu eftir svar