Fundastaður: Fræðslumiðstöð atvinnulífsins Skipholti 50b og Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð í Reykjavík
Fundatími: Mánudagur 24. október kl 9-16
Dagskrá lotunnar:
- Kl. 9-9:30 Fræðslumiðstöð atvinnulífsins – hlutverk og helstu viðfangsefni; Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri og Sigrún Kristín Magnúsdóttir, fulltrúi NVL og kynningarmál. FA
- Kl. 9:30 – 10 Hæfnigreiningar og námskrár fyrir markhópinn; Halla Valgeirsdóttir, námskrár og þarfagreiningar FA
- Kl. 10-10:15: Kaffi og spjall
- Kl 10:15-10:45 Kynning á raunfærnimati: Haukur Harðarson, aðferðafræði raunfærnimats FA
- Kl. 10:45-11:15 Náms- og starfsráðgjöf; Arnheiður Gígja Guðmundsdóttir, aðferðafræði náms- og starfsráðgjafar og raunfærnits. FA
- Kl. 11:15-11:30 Umræður
- Kl. 11:30-12:10 Fjármögnun fullorðinsfræðslu ; Krístín Njálsdóttir hjá Landsmennt.
- Hádegishlé
- Kl 13:15-14:30 Umræður um námskeiðið og hvernig gengur.
Fundagerð
Sveinn Aðalsteinsson framkvæmdastjóri gerði góða grein fyrir tilurð og starfsemi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA). FA var stofnað af Alþýðusambandi Íslands (ASÍ) og Samtökum atvinnulífsins (SA) árið 2002 og fór starfsemin af stað 2003. Árið 2010 bættust Bandalag starfsmanna ríkis og bæja (BSRB), Samband íslenskra sveitarfélaga og fjármálaráðuneytið í starfsemi FA. Hlutverk FA er að vera samstarfsvettvangur þessara aðila um fullorðins- og starfsmenntun á íslenskum vinnumarkaði í samstarfi við aðrar fræðslustofnanir á vegum aðildarsamtakanna. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
Árið 2010 voru sett lög um framhaldsfræðslu nr. 27/2010. Markmið laganna er að mæta þörfum fullorðins fólks með stutta formlega skólagöngu að baki ásamt því að skapa svigrúm og úrræði til að mæta þörfum atvinnulífsins fyrir aukna þekkingu og hæfni starfsfólks.
Sveinn lagði áherslu á að frá upphafi hafi aðilar vinnumarkaðsins (ASÍ og SA) tekið ábyrgð og fullan þátt í að móta framhaldsfræðsluna. Þetta telur hann afar mikilvægt og skapi Íslandi sérstöðu meðal þjóða. Í dag eiga ASÍ og SA um 80% í FA og hinir aðilarnir skipta með sér 20% sem gerir það að verkum að aðilar vinnumarkaðarins eru enn ráðandi afl.
Starfsemi FA byggir á þjónustusamningi við mennta – og menningamálaráðuneytið. Ríkið veitir fjarmagni til reksturs FA til að sinna þeim verkefnum. Einnig er fjármagni veitt í Fræðslusjóð til að standa straum af kostnaði við framhaldsfræðsluna þ.e. kennslu og námskeiðahald, náms- og starfsráðgjöf og raunfærnimat.
FA er í samstarfi við Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar vítt og breytt um landið um framkvæmd framhaldsfræðslunnar. En FA sér m.a.um að þróa og skrifa vottaðar námsleiðir, þróun raunfærnimats og þróun og utanumhald um náms- og starfsráðgjöf fyrir fullorðna.
Sem dæmi um fleiri verefni eru EQM gæðavottun, Stiklur – námskeið fyrir kennara NVL, IPA verkefni, Gátt – ársrit um framhaldsfræðslu o.fl. sjá meðfylgjandi glærur.
Sveinn leggur áherslu á að markmið 2020 sé að 90% fólks á vinnumarkaði sé með framhaldsskólamenntun. Ef tekst að auka þátttöku fyrirtækja í framhaldsfræðslunni mun það hafa mest áhrif á þessa þróun. Í dag er 28-30% fólks á íslenskum vinnumarkaði (25-64 ára) með litla grunnmenntun.
Fleiri spennandi verkefni eru framundan hjá FA: Rafrænt nám, raunfærnimat á móti viðmiðum atvinnulífsins, þekkingarsetur ferðaþjónustunna- grunnmenntun 22.000 manns á vinnumarkaði o.fl. sjá glærur.
Meðfylgjandi glærur Sveins
Sigrún K Magnúsdóttir fulltrúi NVL Norrænt tengslanet um fullorðinsfræðslu, gerði grein fyrir þessu norræna verkefni sem nær til fullorðinsfræðslu á öllum stigum.
Eftir hádegishlé komu nemendur og kennarar saman á Menntavísindasviði og ræddu stöðuna á námskeiðinu. Kom fram að nemendur eru mjög ánægðir með námskeiðið en hafa mismikinn tíma fyrir námið.
Takk fyrir samantektina Margrét. Mjög vel unnin fundargerð sem hægt er að nýta sér vel.
Vel gert Margrét! Ekkert smá vel unnin fundargerð, nákvæm og vel uppsett. Takk fyrir þessa flottu samantekt 🙂 maður endurupplifir alveg þennan dag með því að lesa þetta.