Wiki > Hvað er Wiki?
Ein leið til að skrifa texta með mörgum er að nota Wiki. Þá skrifar fyrst einn, næsti kemur svo inn þegar honum/henni hentar og lagar og bætir við, og svo koll af kolli.
- Lestu um Wiki hjá WikiPedia
- Smelltu hér til að sjá þetta videó um Wiki:
Ritun í Wiki umhverfi þessa vefs lýtur sömu lögmálum og öll önnur ritun í kerfinu og er alls ekki ólíkt því að nota ritvinnsluforrit.
- Þú býrð til nýja síðu með því að smella á flipann „Create New“. Nýja síðan verður sjálfkrafa undirsíða þeirrar sem er opin þegar þú smellir á flipann og það verður til slóð í nýju síðuna neðst á eldri síðunni.
- Til að koma síðunni í ritunarham smellir þú á hnapp, flipa eða tengil sem heitir „Advanced“.
- Þá opnast ritunargluggi fyrir texta og myndir sem þú setur inn á síðuna.
- Efst í þeim glugga er áhaldastika, hún hefur tvær línur, en stundum er aðeins önnur þeirra sýnileg. Þú gerir neðri línuna sýnilega með því að smella á hnappinn sem er lengst til hægri á áhaldastikunni.
- Þá tekur við að skrifa texta og setja inn myndir, sem er í aðalatriðum líkt því sem þú þekkir úr öðrum ritvinnslukerfum.
- Til að vista breytingarnar þarftu að smella á „Update“ eða „Uppfæra“ hnappinn sem er hægramegin á síðunni ofarlega.
Meira
- Almennar leiðbeiningar um að setja efni inn á blogg eða Wiki eins og þetta má sjá hér. Aðrir póstar þarna gætu líka verið gagnlegir.
- Leiðbeiningamyndbönd um virknina í þessum vef
Category: Leiðbeiningar Tags: